454 4000Fá tilboð

Þjónusta

Lóðin frá grunni að síðustu hellu

Hellulagnir, hleðslur og annar yfirborðsfrágangur er okkar sérsvið. Við höfum mikla og fjölbreytta reynslu í frágangi lóða.

Fyrir hverja?

Við vinnum fyrir alla sem þurfa vandaðan frágang

01

Einkalóðir og fjölbýli

Við höfum tekið að okkur fjöldann allan af einka- og fjölbýlishúsalóðum, frá einstökum stéttum upp í heildarfrágang lóðar frá A til Ö.

02

Verktakar og nýbyggingar

Við vinnum mikið við nýbyggingar, bæði með byggingarverktökum og einkaaðilum. Erum vel tækjum búnir og getum séð um alla jarðvinnu sem tengist nýbyggingum.

03

Bæjar- og sveitarfélög

Höfum unnið töluvert fyrir sveitarfélög, bæði við gatnagerð og lóðarfrágang, endurgerð leik- og grunnskólalóða og frágang á ýmsum opnum svæðum.

04

Húsfélög og fyrirtæki

Á veturna tökum við að okkur snjómokstur, söltun og söndun fyrir húsfélög og fyrirtæki og bjóðum einnig upp á vöktun.

Hellulagnir
01

Hellulagnir

Hellulagnir eru okkar sérsvið. Við leggjum stéttar, torg, gönguleiðir, innkeyrslur og bílaplön, hvort sem um ræðir einkalóð, fjölbýli eða opin svæði sveitarfélaga. Við leitumst við að nota besta fáanlega hráefni hverju sinni til að tryggja hámarks endingu og gæði.

33.790 m² af hellulögn og 4.860 m af sögun á hellum

Fá tilboð
Hleðslur
02

Hleðslur

Hlaðnir veggir, stoðveggir, kantar og þrep gefa lóðinni form og halda hæðarmun í skefjum. Við höfum meðal annars hlaðið við bílaplön, innkeyrslur, garða og útivistarsvæði.

2.475 m² af hleðslum

Fá tilboð
Lóðafrágangur og jarðvinna
03

Lóðafrágangur og jarðvinna

Við sjáum um uppbyggingu og frágang lóða frá A til Ö. Við erum vel tækjum búnir og getum séð um alla jarðvinnu sem tengist nýbyggingum, ásamt þökulögn og öðrum yfirborðsfrágangi.

7.900 m² af þökulögn

Fá tilboð
Leiksvæði og skólalóðir
04

Leiksvæði og skólalóðir

Við höfum tekið að okkur endurgerð fjölda leik- og grunnskólalóða sem aðalverktaki, með leiksvæðum og leiktækjum, gervigrasi, gúmmíhellum og öðrum yfirborðsfrágangi.

Salaskóli, Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Fagrabrekka o.fl.

Fá tilboð
Bílaplön og innkeyrslur
05

Bílaplön og innkeyrslur

Hellulögð bílaplön og innkeyrslur fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki. Meðal verka er 5.000 m² grasbílastæði úr grassteini hjá IKEA.

Bílaplan IKEA: 5.000 m² úr grassteini

Fá tilboð
Sólpallar
06

Sólpallar

Sólpallar, stigar og grindverk sem hluti af heildarfrágangi lóðarinnar, í samræmi við hellulögn, hleðslur og gróður.

Fá tilboð
Gönguleiðir og aðgengi
07

Gönguleiðir og aðgengi

Fyrir sveitarfélög höfum við unnið að gatnagerð og gönguleiðum: hellulagðar gangstéttar, hraðahindranir, tröppustíga og uppsetningu rampa til að bæta aðgengi.

100 rampar í Reykjavík, gangstéttar á Seltjarnarnesi

Fá tilboð

Ertu með verk í huga?

Segðu okkur frá verkinu og fáðu tilboð. Eða hringdu beint í okkur.