
Um fyrirtækið
Fagleg og vönduð vinnubrögð
Ánægðir viðskiptavinir eru okkar markmið.
Stjörnugarðar
Skrúðgarðyrkjumeistari í Kópavogi
Stofnandi Stjörnugarða er Þórir Kr. Þórisson skrúðgarðyrkjumeistari.
Við sjáum um uppbyggingu og frágang lóða frá A til Ö og erum sérfræðingar í hellulögnum. Yfir vetrarmánuðina sinnum við snjómokstri og hálkuvörnum fyrir sveitarfélög.
Hjá okkur starfa á bilinu 5 til 15 starfsmenn yfir árið, flestir yfir sumarið þegar mest er að gera. Við erum vaxandi fyrirtæki sem mun á komandi árum setja sinn svip á umhverfið og leggjum mikla áherslu á fagleg og vönduð vinnubrögð.

Stefna
Gæði, öryggi og ábyrgð
Stjörnugarðar eru í Félagi skrúðgarðyrkjumeistara sem eru aðilar að Samtökum iðnaðarins og hafa hlotið D-vottun SI.
Gæðastjórnun
Stjörnugarðar starfrækja virkt gæðastjórnunarkerfi sem tekur mið af ISO 9001 gæðavottun og hafa hlotið D-vottun Samtaka iðnaðarins.
Við leggjum metnað í að skilgreina kröfur viðskiptavina okkar, vinna af fagmennsku og leitumst við að nota besta fáanlega hráefni hverju sinni til að tryggja hámarks endingu og gæði.
Ertu með verk í huga?
Segðu okkur frá verkinu og fáðu tilboð. Eða hringdu beint í okkur.
